ForsíðaSkilmálar
Bold Hársnyrtistofa

Skilmálar

Kaup, verð, afhending, skil og endurgreiðslur — allt sem gildir um viðskiptin þín við Bold Hársnyrtistofu.

01

Almennt

Þessir skilmálar gilda um kaup á vörum í netverslun Bold Hársnyrtistofu á www.bold.is.
Með því að leggja inn pöntun samþykkir kaupandi skilmálana og skuldbindur sig til að fylgja þeim.

02

Verð og greiðslur

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt.
Greiðslur fara fram í gegnum öruggar greiðslugáttir, svo sem greiðslukort, Netgíró og Apple Pay.
Bold áskilur sér rétt til að breyta verði og skilmálum hvenær sem er.

03

Afhending og sending

Vörur eru yfirleitt sendar innan 3–4 virkra daga frá greiðslu, nema annað sé tekið fram.
Sendingarkostnaður bætist við pöntun nema um sé að ræða, tilboð eða fríar sendingar.
Afhending fer fram í samstarfi við Dropp. Einnig er hægt að sækja vörur í verslun Bold Hársnyrtistofu.

Athugið: Á álagstímum, svo sem Black Friday, jólatímabili og öðrum tilboðsdögum, getur afhendingartími lengst vegna mikils álags hjá bæði verslun og flutningsaðilum.

04

Skil og endurgreiðslur

Kaupandi hefur 14 daga skilarétt frá móttöku vöru, í samræmi við lög um neytendasamninga nr. 16/2016.
Varan þarf að vera ónotuð, óopnuð, í upprunalegum umbúðum og með öllum fylgihlutum.

Endurgreiðsla fer fram innan 14 daga frá því að skilaðri vöru er tekið á móti og hún hefur verið skoðuð.
Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema um gallaða vöru sé að ræða.

Skil og skipti á tilboðstímabilum

Á sérstökum tilboðsdögum og álagstímum, svo sem Black Friday og yfir hátíðir, getur skila- og skiptatími verið framlengdur eða breyttur. Sé slíkt í gildi er það tekið fram á vefsíðu eða viðkomandi tilboði.

Vörur keyptar á útsölu eða tilboðum þarf að skila eða skipta innan tilgreinds frests.
Varan þarf að vera óopnuð, ónotuð og í upprunalegum umbúðum.

Athugið:

  • Útsöluvörur er hægt að skipta fyrir inneign eða aðra vöru að sama andvirði.
  • Endurgreiðsla í peningum eða með millifærslu er ekki veitt fyrir útsöluvörur.
05

Ábyrgð og gallaðar vörur

Ef vara reynist gölluð skal hafa samband við Bold innan 7 daga frá móttöku.
Ábyrgð á rafmagnsvörum er 2 ár, nema annað sé tekið fram.
Bold ber ekki ábyrgð á tjóni sem stafar af röngum notkun vöru eða utanaðkomandi aðstæðum.

06

Persónuvernd

Meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi persónuverndarlög.
Upplýsingar eru aðeins afhentar þriðja aðila þegar það er nauðsynlegt, t.d. til flutningsaðila, eða samkvæmt lögum.

07

Lög og úrlausn ágreinings

Ágreiningsmál skulu sæta úrlausn íslenskra dómstóla.

10%afsláttur af
fyrstu pöntun

Gakktu í Bold klúbbinn

Nýjustu tilboðin, fagráðin frá hárgreiðslufólkinu okkar og fyrstur að vita um nýtt í hillunum.

✓ Enginn ruslpóstur · Afskráning hvenær sem er